17/06/2026
Spennandi verkefni komið í vinnslu.
Við notum sumarfríið vel og verðum klár í enn eitt stórverkefnið á næsta skólaári 😍😍😍
Grundaskóli er staðsettur á Akranesi og er annar tveggja grunnskóla á Akranesi
Traust - Samvinna - Virðing
17/06/2026
Spennandi verkefni komið í vinnslu.
Við notum sumarfríið vel og verðum klár í enn eitt stórverkefnið á næsta skólaári 😍😍😍
16/06/2026
Grundaskólafólk er komið á fulla ferð að undirbúa komandi skólaár 🥰
Verðandi nemendur í 1. bekk Grundaskóla Þann 25. ágúst er skólasetning og gert er ráð fyrir því að skólafrístund hefjist í þeirri viku. Skráning opnar 1. júní og fer fram í Völu. Öll börn munu fá pláss en ekki er hægt að tryggja pláss frá skólabyrjun ef umsóknir koma eftir 28.júní.
12/06/2026
Sprotastarf í fremstu röð 🥰🥰🥰
Kvíkmyndastarf er í miklum blóma í Grundaskóla og uppskera vetrarstarfsins var sýnd á Kvikmyndahátíð skólans árið 2026. Fjöldi gesta sótti hátíðina þar á meðal margir þekktir aðilar í kvikmyndageiranum á Íslandi. Við þökkum öllum sem studdu okkur í þessari vinnu og undirbúningur fyrir næstu hátíð er þegar hafinn 😍
Glæsileg uppskera og frábær stemning á Kvikmyndahátíð Grundaskóla 2026 Kvikmyndahátíð Grundaskóla, sem fram fór dagana 1. til 8. júní, tókst vonum framar. Dagskrá hátíðarinnar var fjölbreytt og metnaðarfull og ríkti mikil ánægja með hvernig til tókst. Allir dagskráliðir gengu ótrúlega vel og sýndu nemendur einstakan áhuga og sköpunargleði.
10/06/2026
Árgangur 2010 útskrifaður
Í gær fór fram útskriftarathöfn í Grundaskóla þar sem árgangur 2010 lauk sinni grunnskólagöngu. Alls voru 78 nemendur sem tóku á móti lokavitnisburði frá skólanum á þessum viðburði.
Við óskum útskriftarnemum til hamingju með góðan námsárangur og þökkum foreldrum þeirra einnig fyrir gott samstarf sl. tíu ár. Megi gæfan fylgja ykkur um alla tíð. 🥰🥰🥰
08/06/2026
Skólaslit framundan vorið 2026 😘
Skólaslit Grundaskóla 10.júní Hér koma tímasetningar fyrir skólaslitin þann 10. júní nk.VIð byrjum saman inni á sal og síðan fara nemendur í stofurnar sínar og ljúka skólaárinu saman. 1. - 3. bekkur kl. 9:004. - 5. bekkur kl. 9:306. - 7. bekkur kl. 10:008. - 10. bekkur kl. 10:30Við í Grundaskóla þökkum fyrir ...
08/06/2026
Takk Ung riff fyrir stuðning og þátttöku í Kvikmyndahátíð Grundaskóla 2026 😘
08/06/2026
Vegir liggja til allra átta - Fjölbreyttar námsleiðir í boði 😍
Nú þegar líður að skólalokum og margir nemendur er að útskrifast þá eru margir hugsi. Hvað á ég að læra? Hvert á ég að fara? Fara í framhaldsnám eða finna vinnu?
Þá getur verið gott að líta í kringum sig og skoða hvað er í boði og hvað aðrir hafa gert. Einn af starfsmönnum Grundaskóla, Gunnar Smári Sigurjónsson kláraði FVA og hefur starfað í vetur sem stuðningsfulltrúi með nemendum í 1. bekk. Samhliða vinnu hefur hann stundað nám í Leikhússkóla Þjóðleikhússins. Um liðna helgi tók hann þátt í útskriftarsýningu í leikhúsi allra landsmanna. Til hamingju með sýninguna.
Það er gaman að fylgjast með gömlum nemendum þroska hæfileika sína og blómstra á ólíkum sviðum.
Áfram veginn gott fólk, lærum og lifum. 🥰🥰🥰
05/06/2026
Grundaskóli í 1. sæti enn eitt árið 😍
Grundaskóli er heilsueflandi vinnustaður og bæði nemendur og starfsmenn leggja áherslu á vistvænar samgöngur og hjóla eða ganga á milli vinnu og heimilis. Nýlega var skólanum veitt enn ein verðlaunin í keppni ÍSÍ "Hjólað í vinnuna."
Hér má sjá frétt á heimasíðu Grundaskóla þar sem Áslaug Ákadóttir., kennari tók við viðurkenningu fyrir hönd skólans.
Til hamingju með glæsilegan árangur og höldum áfram að hjóla og ganga í heilsueflandi samfélagi 😘
Hjólað í vinnuna Við getum verið ánægð með okkur sem flottar og kraftmiklar fyrirmyndir. Nemendur okkar eru sjálf ótrúlega dugleg að mæta á hjóli/gangandi í skólann þessa dagana.
04/06/2026
Foreldrar nemenda í 10. bekk færa starfsmönnum Grundaskóla glæsilegar veitingar með kærri þökk fyrir frábæra þjónustu og samstarf í tíu ár. Frábær kveðja á lokadögum skólaársins og starfsfólk þakkar einnig gott samstarf og góða kveðju. Þúsund þakkir 🥰
Kveðja frá 10.bekk Buðu þau öllu starfsfólki skólans upp á köku í þakklætisskyni fyrir öll þau mikilvægu hlutverk í skólagöngu barna þeirra.
04/06/2026
Áhugavert verkefni