10/06/2026
Vegna mikilla vinsælda ætlum við að setja upp auka leiksýningu á verkinu „Á þjóðhátíð ég fer“ með Gleðisprengjunum!
Sýningin verður 16. júní kl. 18:00.
Miðasala hefst 12. júní og stendur til 15. júní frá
kl. 15:30–19:00.
Hægt er að panta miða í síma 852-1940 eða með tölvupósti á [email protected].
Miðaverð: 5.000 kr.
08/06/2026
Hlökkum til að heyra frá þér 😊 [email protected]
04/06/2026
Í dag fengum við heimsókn frá Viðari hjá Skyndihjálparskólanum sem hélt skyndihjálparnámskeið á ensku í Visku.
Þátttakendur fengu bæði fræðslu og verklega þjálfun í því hvernig bregðast skuli við neyðartilvikum og öðluðust mikilvæga færni sem getur skipt sköpum þegar á reynir.
Við þökkum Viðari kærlega fyrir frábært námskeið og góða samveru.
03/06/2026
Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar er nú að ljúka þriggja daga leiðtogaþjálfun frá KVAN.
Á námskeiðinu fengu þátttakendur hagnýt verkfæri sem nýtast í starfi, með áherslu á styrkleika, jafningjasambönd, leiðtogahæfni, markþjálfun, liðsheild, starfsanda, menningu og erfið starfsmannasamtöl.
Markmiðið er að efla bæði einstaklinga og teymi, styrkja jákvæð samskipti og skapa enn betri vinnustað þar sem starfsfólk getur haft jákvæð áhrif á eigið starf, líðan og árangur samstarfsfólks.
Við þökkum Jóni Halldórssyni frá KVAN fyrir frábært námskeið og þátttakendum fyrir góða þátttöku og metnað.
18/05/2026
Gleðisprengjur sprungu með látum - Eyjafréttir
Það var mikil spenna í loftinu þegar ég gekk inn í leikhúsið á miðvikudaginn sl. til að sjá sýninguna Á þjóðhátíð ég fer. Í kynningunni stóð að hér væri um að ræða leiksýningu aldarinnar með Gleðisprengjunum. Ég vissi ekki alveg hverju ég átti von á, en hafði þ...
18/05/2026
Leiksýningin “Á Þjóðhátíð ég fer” sem var frumsýnd þann 13. maí heppnaðist einstaklega vel og fékk frábærar viðtökur. Sýningin var kraftmikil, einlæg og full af gleði❤️ Árna Grétari Jóhannssyni leikstjóra tókst að láta gleðisprengjurnar skína ásamt Bigga og Jarli sem keyrðu upp stemninguna. Starfsfólkið á Heimaey studdi einnig vel við sitt fólk á sviðinu og bak við tjöldin.
Innilegar hamingjuóskir og þakkir til allra sem komu að sýningunni fyrir ómetanlegt starf.
Lífið er svo sannarlega yndislegt🙌🏼
11/05/2026
Kæru vinir
Þar sem stelpurnar okkar í IBV eru að spila mjög mikilvægan leik á þriðjudaginn kl 18:00 hefur verið ákveðið að fella niður sýninguna þann dag. Allir sem áttu miða þá fá sæti á miðvikudagssýninguna - við munum hafa samband við ykkur í dag.
Ein stór sýning verður því klukkan 18:00 á miðvikudaginn fyrir fullu húsi - leikhúsið opnar kl 17 þar sem hægt verður að sækja miðann sinn og skella sér í betri stofuna hjá leikfélaginu.
08/05/2026
Við minnum á að miðasala hefst í dag kl 14:00 í síma 852-1940