11/06/2026
Enn eru örfá pláss laus á laserskera sumarnámskeið smiðjunnar sem stendur yfir dagana 22. - 25. júní. Á námskeiðinu munu krakkarnir fást við skemmtileg verkefni og læra margvíslegu möguleika laserskerans, auk þess að þau fá tækifæri til að spreyta sig á sínum eigin hugmyndum og að raungera þær.
09/06/2026
Það er margt spennandi að gerast hér í smiðjunni. Núna fer að líða að sumarnámskeiðum Fab Lab Smiðjunnar og snýst fyrra námskeiðið um þrívíddarprentun og er það fullsetið í þokkabót! Hér er hægt að sjá nokkrar myndir af því sem að krakkarnir á námskeiðinu munu geta lært að búa til.
03/06/2026
Núna upp á síðkastið hefur smiðjan verið að vinna hörðum höndum að heimasíðu, og er nú loksins komin loka mynd á þá síðu.
Við kynnum því með stolti nýja heimasíðu Fab Lab Vesturlands www.fabvest.is!
(það er enn verið að vinna í símavænni útgáfu og gæti því síðan litið skringilega út sumsstaðar ef hún er opnuð í síma, lofum að klára það á næstunni)
Fab Lab Vesturlands
Þar sem hugmyndirverða að veruleika Vettvangur til Nýsköpunar Fab Lab (Fabrication Laboratory) er smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjur gefa ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda ...
26/05/2026
Fab Lab Bootcamp er þegar starfsmenn Fab Lab smiðja um allt land hittast.
Við nýtum tækifærið til að styrkja tenglsnet, endurmennta og læra hvert af öðru.
Upplifum nýtt umhverfi, kynnumst land og menningu.
Að þessu sinni erum við að hittast á Sauðárkróki og eru 22 einstaklingar að koma og vera hjá okkur þessa vikuna.
Metnaður hefur verið settur í veglega dagskrá og að bjóða alla velkomna og njóta samverunnar.
21/04/2026
Nú er búið er að opna fyrir skráningu á sumarnámskeið Fab Lab Smiðju Vesturlands. Takmarkað pláss er í boði á hvort námskeið og geta hámark 10 skráð sig á námskeið. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á netfangið [email protected] eða með því að hafa samband í gegnum messenger.
03/04/2026
Ertu að skipuleggja fermingu, skírn, eða aðra veislu? Vantar þig kökutopp til að skreyta kökuna? Í fab lab smiðjunni er hægt að búa til sinn eigin kökutopp á innan við klukkutíma!
Kíktu til okkar í opinn tíma á miðvikudögum frá 12 - 20 og búðu til þinn eigin!
29/03/2026
Ert þú einhver sem átt einum of erfitt með að halda lífi í öllum plöntunum þínum?
Langar þig í eitthvað sem að deyr ekki við það eitt að þú horfir rangt á það?
Komdu til okkar í opinn tíma á miðvikudögum frá 12 - 20 og prufaðu að prenta út þín eigin þrívíddaprentuð blóm sem ávallt eru í blóma 🌺
26/03/2026
Nú fer senn að líða að páskum. Hví ekki að kíkja í Fab Lab Smiðjuna og búa til eitthvað skemmtilegt páskaskraut 🐣