23/06/2026
Okkur vantar fleiri frábæra liðsmenn í hópinn okkar. Viltu vera með ?
Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi | Borgarbyggð
Grunnskólinn í Borgarnesi óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 60 - 100% stöðuhlutfall fyrir skólaárið 2026-2027. Við leitum að ábyrgum aðila í störf stuðningsfulltrúa. Þetta starf felst í stuðningi við nemendur við skólann. Unnið er náið í teymi með stuðningsful...
19/06/2026
10. – 12.júní sl. sótti starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi námskeið í Uppeldi til ábyrgðar (e. Restituion). Námskeiðið var haldið í Brighton. Meðal fyrirlesara þar voru Joel Shimoji, Elín Yngvadóttir og Heather Campbell.
Það voru ríflega 80 manns víða af landinu sem sóttu námskeiðin. Ferðin var öll hin ánægjulegasta. Námskeiðin sérlega vel heppnuð og leiðbeinendur lögðu mikið upp úr verklegum æfingum í bland við fræðin. Það gafst vel.
Hópefli er stór hlutur af ferð af þessum toga, hópurinn okkar fór meðal annars í bráðskemmtilega matarupplifun og karaoke, þar sem allir tóku þátt, auk ýmissa smærri hópeflisviðburða.
Áherslan var á að bæta í þekkingarbankann og að njóta lífsins í skemmtilegum félagsskap. Starfsmenn nýttu sína einstaklingsstyrki frá stéttarfélögum auk þess sem Borgarbyggð styrkti hópinn um hluta af ferðakostnaði á flugvöllinn.
Hugmyndafræðin uppeldri til ábyrgðar hefur verið grunnstefið í starfi Grunnskólans í Borgarnesi undanfarna áratugi. Eins og hjá um það bil 100 menntastofnunum á Íslandi, eins og sjá má á heimasíðu félagsins Uppbyggingar https://uppbygging.is/ Starfsfólk héðan hefur sótt námskeið víða um land og erlendis, auk þess sem fyrirlesarar hafa heimsótt okkur. Í okkar starfsmannahópi er góður námskeiðshaldari sem uppfræðir nýja starfsmenn á hverju hausti, auk þess sem hún hefur kennt víðar.
Upphaflega er hugmyndafræðin frá Kanada, sett fram af kennaranum Diane Gossen, en hún byggir á kenningum Williams Glasser, sem hún starfaði með í mörg ár. Inntakið í Uppeldi til ábyrgðar er að nemendur læri að tileinka sér sjálfsstjórn, þeir læri að þekkja sínar grunnþarfir og viðbrögð. Unnið er samkvæmt ákveðnum ferlum, þar sem samtalstækni skipar ákveðinn sess. Maður stjórnar engum nema sjálfum sér, og ber ábyrgð á því sem maður gerir. Virðing fyrir sjálfum sér og þeim sem maður umgengst er áhrifamikill þáttur. Með Uppeldi til ábyrgðar að leiðarljósi stuðlum við að því að nemendur okkar tileinki sér sjálfstæði, ábyrgð virðingu og jákvæð samskipti. Sem kristallast einmitt í einkunnarorðum skólans okkar.
Uppbygging sjálfsaga – uppeldi til ábyrgðar
15/06/2026
Óskilamunir, gleymdir þú einhverju ? Vinsamlegast sækið á fimmtudag eða föstudag í þessari viku.
08/06/2026
Mánudaginn 8. júní fóru fram skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi við hátíðlega og gleðilega athöfn. Dagskráin hófst kl. 10:30 með skrúðgöngu nemenda og starfsfólks í fylgd lögreglu niður í Skallagrímsgarð. Þar tóku nemendur þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum og nutu samverunnar. 🎉
Að leikjum loknum var nemendum og starfsfólki boðið upp á pylsur áður en formleg dagskrá hófst. Þar voru flutt nokkur skemmtiatriði og vitnisburðarblöð afhent nemendum.🌭
Síðar um daginn fór fram útskrift 10. bekkjar við hátíðlega athöfn í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar voru útskriftarnemendur kvaddir og verðlaun veitt fyrir framúrskarandi námsárangur.🎓
Við óskum útskriftarnemendum okkar innilega til hamingju með áfangann og þökkum þeim fyrir samfylgdina. Megi framtíðin færa þeim fjölmörg tækifæri, ánægjulegar stundir og farsæld í þeim verkefnum sem fram undan eru. 🌺
Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hve margir aðstandendur mættu og fögnuðu þessum mikilvæga degi með okkur. Við þökkum öllum sem komu að deginum fyrir þeirra framlag og óskum nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki gleðilegs sumars. ☀️
08/06/2026
Í síðastliðinni viku var kosin ný stjórn nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi. Fráfarandi stjórn eru þökkuð vel unnin störf í vetur. Nýju stjórnina, sem taka mun við í haust skipa: Heiðrún, formaður, Rakel María, varaformaður, Birta Mjöll, gjaldkeri, Svandís Svava, ritari og meðstjórnendurnir Brynjar Þór og Hekla Isabel.
04/06/2026
Skólaslit 8. júní 2026
Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi verða mánudaginn 8. júní og eru þau eru tvískipt. Annars vegar eru skólaslit 1 – 9. bekkjar og hins vegar 10. bekkjar.
1 – 9. bekkur
Hefðbundin kennsla er frá kl. 8:10 – 10:30
Klukkan 10:30 ganga nemendur fylktu liði í Skallagrímsgarð. Þar fara nemendur í hópa eftir stigum/bekkjum og fara í skipulagða dagskrá.
Klukkan 12:30 eru nemendur komnir í sínar bekkjarraðir í Skallagrímsgarði og formleg skólaslit hefjast, þar sem fram fer stutt dagskrá og umsjónarkennarar afhenda vitnisburðarblöð.
Skólabílar fara á hefðbundnum tíma í skólann. Heimakstur er að lokinni athöfna ca. 13:15.
Hvetjum alla til að taka mið af veðri hvað klæðaburð varðar.
Um er að ræða 2 klst. útiveru.
10. bekkur.
Athöfnin fer fram Í Hjálmakletti og hefst kl. 17.00. Þar mæta nemendur og aðstandendur þeirra auk starfsfólks skólans.
02/06/2026
Síðasti dönsku tíminn hjá 10. bekk í gær. Samkvæmt hefðinni var opnuð ísbúð og nemendurnir þurftu að panta sér ís að sjálfsögðu á dönsku. Það er alltaf gaman að heyra hvað krakkarnir eru dugleg að tala dönskuna þegar á reynir.
29/05/2026
Í dag var hinn árlegi stigaleikur á unglingastigi. Liðin fóru víða um bæinn til að safna stigum meðan dómarar sátu og tóku við myndböndum til sönnunar á stigasöfnuninni. Pizzuveislu að leik loknum. Sigurvegarar voru lið 7 en lið 1 og 3 í næstefstu sætum.
27/05/2026
Í dag var ullarsokkafótbolti hjá unglingastiginu. Lið frá hverjum árgangi kepptu. Og áhorfendur í stúlku hvöttu sín lið.
27/05/2026
Stór hópur nemenda í 8., 9. og 10.bekk brá sér á ball í Röst á Hellissandi í kvöld. Óhætt að segja að hópurinn okkar hafi haldið uppi stuðinu og verið frábær fyrirmynd fyrir aðra.