14/06/2026
Í sumar bjóðum við upp á hið sívinsæla Skapandi sumarfjör sem er leikja- og listasmiðja fyrir börn á aldrinum 5–11 ára, þar sem börnin fá að leysa eigin sköpunarkraft úr læðingi í gegnum, myndlist, leiklist, dans, tónlist, útiveru og fjölbreytta leiki. https://www.klifid.is/namskeid/skapandi-sumarfjor
Leiðbeinendur námskeiðsins í sumar eru þær Ninja Kristín Logadóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Elísabet Harðardóttir og Rannveig Edda Aspelund. Þær eru allar úr Garðabænum, nemendur í Verzlunarskóla Íslands og eru einstaklega skemmtilegar, skapandi og peppaðar fyrir sumrinu.
Þetta verður þriðja sumarið þeirra Hrafnhildar og Ninju í Skapandi sumarfjöri. Ninja hefur þó verið tengd námskeiðinu frá unga aldri. Hún er mjög hugmyndarík, skapandi og drífandi. Ninja er einnig í Nemendamótsnefnd Versló, þar sem hún tekur þátt í að setja upp stærsta menntaskólasöngleik landsins.
Rannveig Edda er mjög spennt fyrir sínu fyrsta sumri í Klifinu. Hún hefur tekið þátt í alls konar skapandi verkefnum, æft dans frá þriggja ára aldri og er alltaf að föndra eitthvað skemmtilegt. Rannveig er einnig með sína eigin skartgripalínu, BYREA, þar sem hún hannar og býr til skart sjálf.
Hrafnhildur er mikill reynslubolti og þekkir námskeiðið inn og út. Hún er skapandi, flink og einfaldlega frábær með börnum. Hrafnhildur elskar útiveru, sveitina og hestana sína, Hrafndísi og Drottningu. Hún var líka í dansi þegar hún var yngri og hefur mjög gaman af föndri og skapandi starfi.
Elísabet hefur mikla reynslu af öðrum námskeiðum og kemur inn með mikla gleði og jákvæðni. Hún er dugleg, hress og algjör gleðipinni. Elísabet æfði bæði dans og körfubolta þegar hún var yngri, elskar að ferðast og skoða nýja staði og bjó meðal annars í Víetnam þegar hún var yngri. Hún hefur gaman af leikjum, útiveru og er mjög spennt fyrir sumrinu í Klifinu.
Við erum ótrúlega heppin að hafa þær með okkur í sumar og hlökkum mikið til að taka á móti börnunum í Skapandi sumarfjöri!
13/06/2026
07/06/2026
29/05/2026
28/04/2026
03/11/2025