Nesskóli

Nesskóli

Share

Grunnskóli, með um 190 nemendur í 1. - 10. bekk.

Glæsileg útskrift og kveðjustund hjá 10. bekk 16/06/2026

Glæsileg útskrift og kveðjustund hjá 10. bekk

Glæsileg útskrift og kveðjustund hjá 10. bekk Útskrift 10. bekkjar fór fram með stórkostlegri og hátíðlegri athöfn föstudaginn 5. júní síðastliðinn. Við kvöddum þennan flotta árgang 2010 með miklum söknuði í hjarta, enda voru þau búin að vera með okkur í tíu góð og afar viðburðarík ár. Árgangurinn var ávallt ...

02/06/2026

Kannast einhver við að hafa séð svona peysu?

Hún er ljósgrá með bleikri áletrun og í stærð # # . Hún er ómerkt.

Nemandi glataði henni fyrir um tveimur mánuðum síðan og saknar hennar mikið.

Ef einhver kannast við peysuna endilega hafið samband. 😊

📸 Mynd af samskonar peysu fylgir.

Viðburðarík og glæsileg vorönn að baki í Nesskóla 30/05/2026

Vorönnin dregin saman í smá frétt og er þetta bara brot af öllu því frábæra starfi sem unnið er í Nesskóla.

Viðburðarík og glæsileg vorönn að baki í Nesskóla Vorönnin í Nesskóla var einstaklega litrík, lærdómsrík og iðandi af lífi. Þegar horft er til baka yfir liðna mánuði má með sanni segja að starfið hafi verið gríðarlega viðburðaríkt og að nóg hafi verið um að vera á hverjum einasta degi hjá nemendum og starfsfólki. Skól...

16/04/2026

Árshátíð miðstigs í dag, hlökkum til að sjá ykkur í sal Nesskóla

14/04/2026

Við erum ótrúlega stolt af nemendum okkar í 7. GJS sem kepptu fyrir hönd skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var a Eskifirði í dag. Það voru þau Emma Sólveig Loftsdóttir, Rökkvi Halldórsson og Hulda Höskuldsdóttir sem kepptu fyrir hönd skólans og komu þau öll með verðlaun heim. Emma lenti í öðru sæti, Rökkvi í þriðja sæti og Hulda fékk sérstök ljóðaverðlaun. Með þeim fóru þrír varamenn þau Eðvald Pétur Birkisson, Kristjana Salný Jónsdóttir og Þorsteinn Mikael Tulinius. Þau lásu upp ljóð fyrir gesti á meðan dómnefnd ræddi málin. Flottir krakkar sem eiga framtíðina fyrir sér.

Want your school to be the top-listed School/college in Neskaupstaður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Skólavegur
Neskaupstaður
740