16/06/2026
Þessar þrjár flottu konur og kennarar Elísabet Þorsteinsdóttir, Guðrún Stephensen og Sigurlaug Jónsdóttir voru kvaddar í Klettaskóla í lok skólaárs, eftir áratuga farsælt starf sem kennarar við Klettaskóla og áður Öskjuhlíðarskóla. Samanlagður árafjöldi þeirra við störf í þessum skólum er hvorki meira né minna en 66 ár.
Arnheiður Helgadóttir skólastjóri kvaddi þær með fallegum orðum um þeirra helstu mannkosti, kveðjugjöf og blómum. Þeim er öllum þakkað gott starf í þágu nemenda Klettaskóla og gott samstarf í gegnum tíðina.
11/06/2026
Það var margt um manninn á skólaslitum Klettaskóla 10. júní í íþróttasal skólans. Stuttu síðar hófst glæsileg Vorhátíð úti á skólalóð í blíðskaparveðri. Þar var margt skemmtilegt í boði, risasápukúlur, krítar, andlitsmálun, leikföng og skemmtidagskrá. Sólon og Dimma dúskur léku við hvern sinn fingur. Gestir gátu gætt sér á pylsum, poppi, krapi og íspinnum. Hápunktur dagskrárinnar var svo þegar okkar ástsæli Páll Óskar kom og söng lagið "Eitt af blómunum" við mikinn fögnuð viðstaddra. Nemendur og starfsfólk voru búin að undirbúa sig vel, læra lagið, búa til falleg blóm, hjörtu og tákn og gera glæsilegan bakgrunn fyrir söngatriðið og veglegan blómakrans fyrir söngvarann. Palli var í miklu stuði, tók aukalag, "Gordjöss", sem viðstaddir tóku vel undir í söng og með tilheyrandi dansi og hreyfingum. Að lokum bauð hann öllum sem vildu að taka selfie mynd með sér.
11/06/2026
Það var sannarlega hátíðleg stund þegar 10. bekkingar Klettaskóla útskrifuðust úr skólanum 9. júní. Stolt og gleði skein úr augum aðstandenda og starfsfólks. Umsjónarkennarar 10. bekkja afhentu hverjum og einum vitnisburð og síðan voru veittar viðurkenningar til sundfólks og íþróttafólks ársins. Nemendur voru einstaklega glaðir og yfirvegaðir á sviðinu undir ræðuhöldum. Bjarki Benediktsson hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar og áttu notalega stund og spjall saman í hátíðarsal skólans. Við í Klettaskóla óskum öllum útskriftarnemum og fjölskyldum þeirra velfarnaðar á þessum tímamótum og vitum að nú bíða þeirra mörg ný ævintýri í framhaldsskólanum.
09/06/2026
Það var aldeilis gaman hjá okkur í Klettaskóla þegar frábær fjöllistahópur skipaður nemendum skólans var með sýningu fyrir alla nemendur og starfsfólk skólans. Sýningin sem samanstóð af dansi, söng og leikrænni tjáningu, var um fjölbreytileikann og mikilvægi þessa að taka alla liti með inn í regnbogann, líka þann svarta. Sýningin vakti mikla lukku og var hópnum fagnað með lófataki. Krakkarnir æfðu þessa flottu sýningu undir handleiðslu þeirra Ingu Dóru Glan Guðmundsdóttur og Lilju Helgadóttur.
03/06/2026
Okkar frábæra foreldrafélag kom færandi hendi í morgun með glæsilegar kökur fyrir okkur starfsfólk Klettaskóla. Þetta kom skemmtilega á óvart og gaf svo sannarlega hlýju í hjartað❤️Takk fyrir okkur elsku foreldrar❤️
03/06/2026
Kæra samfélg!
Klettskóli -Korpa auglýsir eftir tónmenntakennara til að kenna okkar frábæru unglingum í Korpu á næsta ári.
Ef þið vitið um einhvern sem gæti haft áhuga endilega hnippið í þau og svo má líka alltaf deila þessari auglýsingu.
Takk innilega :)
reykjavik.is
30/04/2026
Viltu þú eða þekkir þú einhvern öflugan kennara/sérkennara/þroskaþjálfa, sem vill ganga til liðs við teymi af öflugu fagfólki. Þá ættir þú að sækja um hjá okkur í Klettaskóla.
Klettaskóli auglýsir eftir öflugum sérkennara, kennara eða þroskaþjálfa í Klettaskóla frá og með haustinu 2026.
Nánari upplýsingar má finna á https://reykjavik.is/job/42580
Við hvetjum alla okkar fylgjendur til að deila þessu sem víðast!
Sérkennari, kennari eða þroskaþjálfi í Klettaskóla, Suðurhlíð 9 | Reykjavik
Til baka á starfasíðu Sérkennari, kennari eða þroskaþjálfi í Klettaskóla, Suðurhlíð 9 Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og eru einkunnarorð skólans "Menntun fyrir lífið". Við leitum að öflugum sérkennurum/kennurum/þroskaþjálfu...
04/03/2026
Fræðsla ætluð foreldrum barna sem eiga tjáskiptatæki verður næstkomandi þriðjudag kl. 14.30, á kaffistofu starfsólks, á annarri hæð. Skráningarhlekkur hér fyrir neðan
17/02/2026
Nú er vetrarfrí í vændum og skólinn verður lokaður vegna starfsdags miðvikudaginn 18. febrúar og vetrarfrí tekur svo við fimmtudaginn 19. og föstudaginn 20 febrúar. Kennsla hefst aftur mánudaginn 23. febrúar.
Reykjavíkurborg býður upp á fjölbreytta og skemmtilega afþreyingu fyrir fjölskyldur um alla borg þessa daga.
Sundlaugar, söfn og menningarmiðstöðvar standa opnar og bjóða upp á spennandi dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Sjá dagskrá hér: https://reykjavik.is/vetrarfri
Við hvetjum fjölskyldur til að nýta sér þetta tækifæri og eiga góðar stundir saman. Það er um að gera að kynna sér það sem er í boði og njóta þess að eiga frítíma saman.
Hlökkum til að hefja störf að nýju miðvikudaginn 26. febrúar með bros á vör og endurnærð!
Vetrarfrí 2026
Vetrarfrí grunnskóla í Reykjavík er 19. - 22. febrúar 2026. Það er nóg um að vera og hér er að finna upplýsingar um alls konar viðburði sem í boði eru.