23/06/2026
Frábært viðtal Ásdísar Olsen við mig á Samstöðinni í dag ❤. Við fórum vítt og breytt yfir sviðið og ræddum meðal annars um sköpun, nám, listmeðferð og námslistmeðferð. Ég hvet öll til að hlusta (sjá link í fyrstu athugasemd).
26/04/2026
✨ Aðferðir og kenningar listmeðferðar – fyrsti hluti ✨
Það er ánægjulegt að leiða einstakan hóp kennara, gestakennara og nemenda á námskeiðinu „Aðferðir og kenningar listmeðferðar – fyrsti hluti“ sem kennt er í Símenntun Háskólans á Akureyri. Á námskeiðinu koma saman fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn, listmeðferðarfræðingar, geðlæknir, sálgreinir – kennarar, myndlistarmenn, iðjuþjálfar, hjúkrunarfræðingar, þroskaþjálfi, sérkennarar og fleiri sem hafa sameiginlegan áhuga á listmeðferð og mikilvægi hennar í samfélaginu.
Nemendurnir sýna virkni, áhuga og einlægri þátttöku – bæði á efninu sjálfu og í samskiptum sín á milli. Það skapast einstakt andrúmsloft á námskeiðinu þar sem lærdómur, sköpun og samkennd fá að njóta sín. Kennari námskeiðsins er Dr. Unnur Óttarsdóttir með aðstoð Elísabetar Lorange listmeðferðarfræðings. Gestakennarar eru Helgi Garðar Garðarsson, geðlæknir, Dr. Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir, og Dr. Jordan S. Potash, listmeðferðarfræðingur.
📚 Á námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir grunnstoðir listmeðferðar þar sem farið er yfir helstu kenningar og aðferðir í sögulegu samhengi.
🎨 Með blöndu af skapandi vinnu, fyrirlestrum, umræðum og verkefnum öðlast nemendur dýpri skilning á listmeðferð og áhrifum hennar.
🧠 Áhersla er lögð á að efla sjálfsvitund í gegnum eigin myndmál og skilning á því hvernig innra líf birtist í listrænni tjáningu.
🛠️ Nemendur kynnast fjölbreyttum efnivið og aðferðum og hvernig samþætta má sköpun, lestur og fræðilega vinnu.
Námskeiðið er tækifæri fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn á listmeðferð, bæði fræðilega og í gegnum eigin reynslu (sjá hlekk í fyrstu athugasemd).
22/04/2026
Það var ánægjulegt að kynna rannsóknir mínar á teikningu, minni, námi, áföllum og listmeðferð í ReykjavíkurAkademíunni í dag. Áhugaverðar umræður og hugleiðingar fóru fram. Ég á ReykjavíkurAkademíunni mikið að þakka þar sem ég hef árum saman fengið rými til að hugsa og rannsaka innan um aðra fræðimenn.
09/04/2026
I’m honored to have been invited to serve as a keynote speaker at the Art Therapy and Counseling Conference: Foundations and Futures at Caldwell University in New Jersey, taking place this Sunday, April 12th.
More than 100 participants will be joining the 3-hour keynote presentation titled Drawing the Past, Shaping the Future: Memory Drawing for Emotional Well-Being and Coursework Learning.
In the conference introduction, it is noted: “In the afternoon, internationally recognized clinician and researcher Unnur Óttarsdóttir will present her groundbreaking memory drawing research, bridging art therapy, education, trauma-informed practice, and expressive modalities.”
The conference celebrates 25 years of growth and innovation in the field, honoring the pioneers who have shaped clinical training, professional identity, and community impact. The future of art therapy will also be discussed, including a new doctoral program at Caldwell University and expanded efforts in research, scholarship, and leadership.
I'm thankful to Annette Vaccaro, associate professor and program coordinator of the Department of Counseling with Art Therapy Concentration, for organizing this meaningful event and for her generous hospitality.
I look forward to a day of reflection, connection, and inspiration as we honor the past, engage the present, and shape the future of art therapy.
IS.
Það er sannur heiður að hafa verið boðið að vera aðalfyrirlesari á ráðstefnunni "Art Therapy and Counseling Conference: Foundations and Futures" við Caldwell University í New Jersey, sem fer fram núna á sunnudaginn 12. apríl.
Yfir 100 þátttakendur munu taka þátt í þriggja tíma aðalfyrirlestri sem ber titilinn: "Drawing the Past, Shaping the Future: Memory Drawing for Emotional Well-Being and Coursework Learning" (Að teikna fortíðina og móta framtíðina: Minnisteikning fyrir tilfinningalega vellíðan og bólkegt nám).
Í kynningu ráðstefnunnar segir: „Seinnipart dags mun alþjóðlega viðurkenndur klínískur sérfræðingur og rannsakandi, Unnur Óttarsdóttir, kynna brautryðjanda rannsóknir sínar á minnisteikningu (e. memory drawing), sem samþættir listmeðferð, menntun, áfallamiðaða nálgun og tjáningu.“
Ráðstefnan fagnar 25 ára vexti og nýsköpun á sviðinu og heiðrar þá frumkvöðla sem hafa mótað klíníska þjálfun, faglega sjálfsmynd og áhrif á samfélagið. Um leið er horft til framtíðar, meðal annars í tengslum við þróun nýs doktorsnáms við Caldwell University sem markar skref í átt að auknum rannsóknum, fræðastarfi og leiðtogahlutverki.
Bestu þakkir til Annette Vaccaro, deildarforseta meistaranáms í ráðgjöf með áherslu á listmeðferð, fyrir boðið, skipulagningu þessarar mikilvægu ráðstefnu og fyrir hlýjar móttökur.
Ég hlakka til ígrundunar, tengingar og innblástrar þar sem fortíðin verður heiðruð þar sem tekist verður á við nútímann og framtíð listmeðferðar mótuð.
Sjá nánari upplýsingar á hlekk í kommenti.