09/06/2026
Mikil gleði var þegar 44 nemendur Magnavita námsins voru útskrifaðir í Opna háskólanum í apríl, Opni háskólinn í HR.
Þetta er fjórði útskriftarhópur Magnavita og það eru forréttindi fyrir aðstandendur námsins að upplifa gleðina og ánægjuna með námið og hvað það færir nemendum mikla tilhlökkun fyrir þriðja æviskeiðinu og aukin lífsgæði.
Sjá nánar: www.magnavita.is
09/06/2026
Magnavita hefur jákvæð áhrif á starfsfólk.
„Við höfum séð hversu jákvæð áhrif Magnavita námið hefur haft á starfsfólk sem er að undirbúa næsta kafla lífsins. Það er afar hvetjandi að fylgjast með fólki staldra við, setja sér ný markmið og horfa með jákvæðum augum á þriðja æviskeiðið.“
- Hafsteinn Bragason
29/05/2026
Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu.
„Fyrir mig var þetta ekki bara nám heldur raunverulegt ferðalag sem opnaði nýjar dyr, bæði inn á við og út á við. Hver kennsludagur var eins og að opna lítið töfrabox fullt af innsýn, hugmyndum og lífsvisku. Námið gaf mér frekari trú á sjálfa mig og jákvæða sýn á það sem framundan er.“
- Hekla Karen
21/05/2026
Magnavita er fjárfesting í framtíðinni. Skráningarfrestur er til 20. júní. Hjón fá 10% afslátt. Kynntu þér málið á magnavita.is.
14/04/2026
Vegna mikillar eftirspurnar höfum við bætt við auka kynningafundi þann 22. apríl kl. 15:15 í Opna Háskólanum. Aðeins 14 sæti laus fyrir haustið.
Nánar á magnavita.is.
29/03/2026
Vegna mikillar eftirspurnar í Magnavita námið höfum við bætt við námskeiði á þriðjudögum sem hefst um miðjan september haustið 2026.
Uppselt er á miðvikudögum og þegar eru tæplega 30 manns skráðir á þriðjudögum en 42 pláss eru í boði.
Ekki bíða með að skrá þig, þar sem líklegt er að það verði biðlisti. Ekki þarf að greiða fyrr en þremur vikum fyrir fyrsta kennsludag 16 september.
Skráning eða nánari upplýsingar á
Magnavita
Sigurlaug fékk Guðfinnu í samtal í þáttinn Segðu mér á RÚV þar sem rætt er um lífshlaup Guðfinnu og auðvitað kemur Magnavita þar við sögu.
28/01/2026
Uppselt á fyrsta námskeið! Höfum opnað fyrir skráningar á annað námskeið veturinn 2026 - 2027. Næsti kynningarfundur er 24. mars kl. 16:15 í Opna Háskólanum.
16/01/2026
Góð mæting var á kynningarfund Magnavita í Opna Háskólanum.
Skráning er hafin á næsta námskeið sem hefst um miðjan september 2026. Nú þegar eru yfir 30 manns skráðir fyrir haustið.
Ekki hika við að skrá þig tímanlega en ekki þarf að greiða fyrr en mánuði fyrir fyrsta kemnsludag.
Sjá nánar á www.magnavita.is
01/01/2026
Sigurlaug M. Jónasdóttir fékk Guðfinnu S. Bjarnadóttur í samtal í þáttinn Segðu mér á RÚV þar sem rætt er um lífshlaup Guðfinnu og auðvitað kemur Magnavita þar við sögu.
Segðu mér - Spilari RÚV
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
14/12/2025
Guðrún Bergmann tók viðtal við Guðfinnu Bjarnadóttur á dögunum um Magnavita námið og þriðja æviskeiðið.
Þriðja æviskeiðið