Rimaskóli

Rimaskóli

Share

Rimaskóli er heildstæður grunnskóli með 1. - 10.bekk. Í Rimaskóla er fjölbreytt og litríkt skólastarf haft að leiðarljósi.

Skólinn hefur um árabil lagt áherslu á að virkja nemendur á sem fjölbreytilegastan máta.

09/06/2026
Photos from Rimaskóli's post 08/06/2026

Sumarsáttmáli foreldra í 1.-4.bekk
Mánudaginn 8.júní hittust hópur foreldra barna í 1.-4.bekk. Þau settu sér saman sáttmála um viðmið sem þeim finnst mikilvægt að huga að í sumar. Það var sérstaklega ánægjulegt hvað feður fjölmenntu og tóku virkan þátt í umræðum! Vel gert foreldrar!

Færsældarsáttmáli Heimilis og skóla: https://sites.google.com/view/heimiliogskli/fræðsluefni

Umræðuefnið var:

Útivist og öryggi: Hvað er hæfilegur útivistartími fyrir þennan aldur og hvar mega þau leika sér ein?

Skjátíma í sumarfríinu: Hvernig hvetjum við til leiks og hvíldar í stað þess að skjárinn taki yfir?

Vináttu og samskipti: Hvernig vöktum við hópinn, að enginn sé skilinn út undan, og hvernig reglum fylgjum við þegar krakkar ganga inn og út af heimilum hvers annars?

Foreldrafélagið mun senda út sáttmálann þegar hann verður tilbúinn!

Photos from Háskólinn í Reykjavík's post 03/06/2026

Davíð Már Sigurðsson íþróttakennari og Sigrún Blomsterberg þroskaþjálfi fengu viðurkenningu frá Háskóla Reykjavíkur fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Þau tvö hafa verið ótrúlega hugmyndarík í að finna leiðir til að koma sem best til móts við nemendur! Við erum svo stolt að hafa þau í liði Rimaskóla! 💕🎊

,,Í Rimaskóla er um verkefni að ræða sem styður nemendur í aukakennslu í sundi við að ná settum markmiðum. Þegar þeim viðmiðum hefur verið náð eru nemendur tilbúnir að takast á við hin hefðbundnu viðmið aðalnámskrár.

Hér er um frábærlega vel skipulagt og útfært verkefni að ræða. Námsmat er skýrt bæði foreldrum og nemendum. Áfangamiðuð viðmið leiða nemendur áfram skref fyrir skref þar til aðal markmiðinu er náð, að útskrifast yfir í almenna bekkjarkennslu.

Íþróttakennarar sem fá viðurkenningu eru þau Davíð Már Sigurðsson og Sigrún Blomsterberg. Þau hafa sett fram frábært kennslufyrirkomulag fyrir börn sem glíma við þætti eins og vatnshræðslu eða óöryggi í vatni þar sem þau finna fljótt fyrir framförum og hvata til að standa sig vel."

01/06/2026

Í morgun fór MMS að birta niðurstöður stöðu- og framvinduprófa og lesfimi á Ísland.is.
Niðurstöðurnar er að finna undir Menntun á Mínum síðum.

Svona finna foreldrar niðurstöðurnar:
* Veldu Menntun á forsíðunni á Mínum síðum Ísland.is
* Veldu grunnskóli
* Veldu nafn barnsins þíns
Þar má finna niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófunum

30/05/2026

🌍✨ Ninna okkar á alþjóðlegri ráðstefnu!

Ninna Ómarsdóttir, náttúrufræðikennari við Rimaskóla, er þessa dagana stödd á ráðstefnunni *Science on Stage* í Klaipeda í Litháen ásamt kennurum frá Brekkubæjarskóla og Hlíðaskóla.

Á ráðstefnunni kemur saman skólafólk víðs vegar að úr Evrópu til að miðla og kynnast áhugaverðum verkefnum á sviði STEAM. STEAM er skammstöfun fyrir vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði – en samþætting þessara greina stuðlar að gagnrýninni hugsun, nýsköpun og lausnamiðaðri nálgun.

👏 Verkefni Ninnu hefur vakið mikla athygli á ráðstefnunni en þar sýnir hún hvernig hægt er að nýta STEAM til að vinna á skapandi hátt með verkfræði, náttúrufræði og hönnun.

📄 Nánari upplýsingar um verkefnið:
https://shorturl.at/Ys6mW

🔗 Heimasíða ráðstefnunnar:
https://sons2026.eu/

Við erum afar stolt af Ninnu og hennar framlagi til skólastarfs og nýsköpunar 💛

Science on Stage 2026 Welcome to the Science on Stage 2026 homepage where you can find info about our events.

6 bekkjar ferð til Stykkishólms 28/05/2026

Geggjuð ferð hjá 6 bekk

6 bekkjar ferð til Stykkishólms Sjötti bekkur fór í vel heppnaða ferð í Stykkishólm í gær með viðkomu á Grábrók og Erpsstöðum. Þau gistu í grunnskólanum, kynntust fullt af frábærum krökkum og enduðu ferðina á eftirminnilegri siglingu um Breiðafjörð.

22/05/2026

Ekki láta vorið grípa þig bufflausa(n)!

💰 Kostar aðeins 1.000 kr. á skrifstofu skólans.

11/05/2026

Góðan dag
Framundan er stutt skólavika: starfsdagur er á miðvikudag þá eru enginn nemendur í skólanum og frí á fimmtudag (uppstigningardag).

A short week is coming up: Wednesday is a staff training day (no students) and Thursday is a public holiday (Ascension Day).“

Photos from Rimaskóli's post 07/05/2026

Mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland ásamt Ágústi Ólafssyni aðstoðarmanni og Lindu Heiðarsdóttur skrifstofustjóra heimsóttu Rimaskóla í dag. Okkar frábæri kór söng tvö lög. Kór Rimaskóla er skipaður áhugasömum nemendum í 2. og 4. bekk ásamt öllum nemendum úr þriðja bekk. Síðan skoðuðum við skólastarfið og kíktum inn hjá 1. og 2.bekk sem voru í PALS og stöðvavinnu. Við settumst svo niður með fulltrúum nemenda, kennara og stjórnenda og ræddum um skólamál.

26/03/2026

Erum með lágmarks mannskap í húsi ef einhver þarf að koma barni sínu í skólann. Vinsamlegast sendið póst á [email protected] ef þið sendið barn. Ekki þarf að tilkynna ef börn koma ekki í skólann.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Reykjavík
112