Í Stúlknakór Reykjavíkur 4 fá stúlkur á aldrinum 12 - 16 ára einstakt tækifæri til að vaxa og dafna í hlýju og hvetjandi umhverfi.
Kórinn fær mikla æfingu í framkomu og tekur reglulega þátt í fjölbreyttum verkefnum.
Staðfest verkefni á næsta skólaári verða meðal annars: Norrænt samstarfsverkefni í Norðurljósasal Hörpu, fernir jólatónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk minni viðburða.
Gestakennarar koma í heimsókn og halda örnámskeið í leiklist, dansi og raddþjálfun.
Grunnatriði í tónfræði og nótnalestur er kennt á fimmtudögum.
VERTU MEÐ Í VETUR - skráning er inn á abler.
Domus vox - þar sem röddin þín hljómar!
Domus vox
Söngskólinn Domus vox hýsir öflugt söngstarf Stúlknakórs Reykjavíkur, Vox feminae, Cantabile Söngskólinn Domus Vox var stofnaður haustið 2000 af Margréti J.
Pálmadóttur söngkonu og kórstjóra. Sérstaða skólans er kórastarf stúlkna og kvenna og samstarf þeirra á milli með einstöku tónleikahaldi. Einsöngsdeild Domus Vox þjónustar nemendur innan og utan kóranna frá forskólaaldri til fullorðins ára.
Öflugt barna- og unglingastarf veitir nemendum nauðsynlega undirstöðu til að taka þátt í söngstarfi, sem einstaklingur eða í hópum. Undirstaða námskrafna er a
RADDPRUFUR - AURORA!!
Raddprufur AURORA fyrir haustið 2026 fara fram í lok júní!
aldursviðmið = 17 - 30 ára
Gerð er krafa um fyrri kórreynslu og færni í nótnalestri. Kórinn æfir á mánudögum og fimmtudögum.
Aurora er hluti af einsöngsdeild Söngskólans Domus vox og gefst kórfélögum þannig tækifæri á að stunda einsöngsnám upp að framhaldsstigi. Flestir kórfélagar hafa nýtt sér það tækifæri og er söngur því orðinn stór þáttur í lífi þeirra.
Kórinn tekur að sér ýmis samstarfsverkefni og hefur margoft tekið þátt í tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og fjölmörgum leikhúsuppfærslum í samstarfi við Borgarleikhúsið, nú síðast í Söngleiknum 9 líf (2020 – 2024).
Einnig hefur verið leitað til kórsins þegar kemur að hljóðupptökum fyrir kvikmyndir eða hljómplötur.
Kórinn söng í Eldborg á tónleikum hjá GDRN í Maí 2024, KK og Sinfó 2025 og Caroline Shaw 2026.
Una Stefánsdóttir samdi fyrir kórinn 10 sönglög við texta Huldu og var kórinn að ljúka við hljóðupptökur fyrr í maí.
22/05/2026
STUNDASKRÁ KÓRANNA OKKAR Í VETUR!
https://www.abler.io/shop/domusvox
SKRÁNING ER HAFIN Í ALLA KÓRA!
INNTÖKUSKILYRÐI Í AURORA!
DOMUSDRENGIR FYRIR ALLA SYNGJANDI KÁTA DRENGI 6 - 10 ÁRA!
DOMUS VOX, HÚS RADDARINNAR
ÞAR SEM RÖDDIN ÞÍN HLJÓMAR!
13/05/2026
Kæru foreldrar og nemendur,
TAKK fyrir dásamlega vortónleika og frábæran dag.
Skráning fyrir næsta vetur er nú hafin og hvetjum við áhugasöm til að tryggja sér pláss sem allra fyrst.
SAMHLJÓMUR - VIRÐING - HLUSTUN
Bestu kveðjur
Kennarar
10/05/2026
Takk fyrir fallega og dýrmæta stund i dag elsku kórnemendur og foreldrar, vinir og ættingjar.
Takk elsku kennarar !
Áfram með smjörið.
Myndir Eva Schram
Í gær áttum við dýrmæta stund í sönghúsinu okkar .
Tilefnið var 70 ára afmæli Möggu Pálma!!!
Árið 2000 stofnaði Margrét í félagi við aðra sönghúsið Domus vox í Reykjavík sem sameinar undir einu þaki söngskóla og kórastarfsemi.
Margrét hefur unnið frumkvöðla- og hvatningarstarf í þágu stúlkna- og kvennakóra á Íslandi og hlaut fyrir það Riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu árið 2004. Þá sæmdi Karl Gustav XVI, konungur Svía, Margréti Riddarakrossi hinnar konunglegu Norðurstjörnu í opinberri heimsókn sinni í september 2004.
Það var einstök upplifun að koma saman, syngja, gleðjast og þakka fyrir það mikla framlag sem Margrét hefur gefið tónlistarlífinu og öllum þeim kórfélögum sem hafa sungið undir hennar leiðsögn.
HÚRRA fyrir Möggu!!
Dásamleg æfing í dag þar sem Stúlknakór Reykjavíkur og æfðu fyrir tónleikana sem verða haldnir þann 10. maí í Langholtskirkju kl. 15:00!
Miðasala er enn í fullum gangi og nokkrir lausir miðar!
Sjáumst í Langholtskirkju 15:00 þann 10. maí!
19/04/2026
Takk og Lucy Champion
We are greatful for a wonderful workshop and a delightful time.
01/01/2026
Stjórnendur Söngskólans Domus vox
óska kennurum, nemendum, foreldrum, velunnurum og kórum hússins gleðilegs árs.
Þökkum viðburðaríka samveru undanfarin 25 ár.
Við vekjum athygli á að sjónvarpsupptaka frá Jólatónleikum Sinfóníunnar var á dagskrá RÚV á jóladag kl. 17:00 🎄✨
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/jolatonleikar-sinfoniuhljomsveitar-islands/38398/be64f1
Einnig voru tónleikar KK og Sinfó útvarpaðir á gamlársdag en þar sungu AURORA í 10 lögum🎄✨
https://www.ruv.is/utvarp/spila/kk-og-sinfo/38674/bgqbp1
Sjáumst í næstu viku❤️
19/12/2025
Um 100 nemendur í Stúlknakór Reykjavíkur, Aurora og einsöngsdeild sungu á fernum tónleikum í Eldborg síðast liðna helgi ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Við erum þakklát fyrir þetta einstaka tækifæri sem veitir nemendum dýrmæta reynslu og hvatningu í listnámi sínu.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Telephone
Website
Address
Laugarvegur 116
Reykjavík
105
Opening Hours
| Monday | 14:00 - 18:00 |
| Tuesday | 14:00 - 18:00 |
| Wednesday | 14:00 - 18:00 |
| Thursday | 14:00 - 18:00 |