Bergþóra Emma og Alexander Kiljan úr Garðaskóla voru fulltrúar Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi og eru hér ásamt Rósönnu Andrésdóttur kennara að ræða við Björn Malmquist fréttamann RUV í Brussel beint eftir keppnina.
Fjármálavit
Fjármálavit er námsefni um grunnþætti fjármála ætlað nemendum í efstu bekkjum grunnskóla.
Fjármálavit er fræðsluvettvangur með áherslu á námsefni í fjármálalæsi fyrir ungmenni á aldrinum 13 – 15 ára. Tilgangur
Að bæta fjármálalæsi og stuðla að upplýstri ákvarðanatöku í fjármálum með áherslu á sparnað og fyrirhyggju. Á þeim forsendum tekur starfsfólk fjármálafyrirtækja, tryggingafélaga og lífeyrissjóða þátt í fræðslustörfum undir hatti Fjármálavits og eru aldrei merkt eða talsmenn sinna
19/05/2026
Frá Garðaskola til Brussel👏👍✈️ Bergþóra Emma og Alexander Kiljan voru fulltrúar Íslands og samnemenda sinna í 10. bekk Garðaskóla í Evrópukeppninni í fjármálalæsi sem lauk í dag. Það voru 60 spenntir unglingar frá 30 löndum sem mættu til leiks ásamt kennurum sínum og hafnaði íslenska liðið í 12.sæti og var efst meðal norðurlandanna - sannkallaðir norðurlandameistarar👏👍
18/05/2026
Garðaskóli er sigurvegari Fjármálaleiknna 2026. 2000 nemendur í 50 grunnskólum tóku þátt í spennandi keppni um fjármál. Tveir fulltrúar sigurvegaranna í Garðaskóla eru fulltrúar Íslands í Evrópukeppninni í fjármálalæsi í Brussel 19. maí 2026.
07/05/2026
Þessi flotti hópur nemenda er í nýsköpunaráfanga í HR og vinnur nú að gerð fræðsluspils í fjármálalæsi fyrir grunnskólanema. Þau komu við hjá Fjármálaviti og fengu nokkur góð ráð👏👍
05/05/2026
Niðurstöður úr nýrri könnun Gallup um fjármálalæsi sýna m.a. að yfir 90% aðspurðra telja að fjármálalæsi eigi að vera skylda í grunnskólum.
Yfir 90% telja mikilvægt að gera fjármálalæsi að skyldufagi Rúmlega 9 af hverjum 10 telja skipta miklu máli að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í grunnskólum landsins. Þetta kemur í ljós í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir SFF.
17/04/2026
Krakkarnir í 10. bekk Garðaskóla eru sigurvegarar Fjármálaleikanna 2026 og fá titilinn Íslandsmeistarar grunnskóla í fjármálalæsi. Grunnskóli Fjallabyggðar hafnaði í öðru sæti og Vogaskóli í því þriðja.
Um 2000 nemendur í 50 grunnskólum landsins tóku þátt í keppninni, en Garðaskóli verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fer í Brussel 18. - 19. maí næstkomandi.
Um er að ræða spennandi vefleik þar sem krakkarnir svara 48 fjölbreyttum spurningum um fjármál sem snúast m.a. um að geta reiknað vexti á lán og sparnað, að vita um hvað tryggingar snúast, þekkja réttindi og skyldur á vinnumarkaði, átta sig á lífeyrissparnaði og kunna ýmislegt um t.d. gengissveiflur og verðlagsþróun.
https://fjarmalavit.is/3161-2/
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Website
Address
Borgartún 35
Reykjavík
105