Menntaskólinn við Sund

Menntaskólinn við Sund

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Menntaskólinn við Sund, High School, Gnoðarvogur 43, Reykjavík.

Photos from Menntaskólinn við Sund's post 19/06/2026

Hvorki meira né minna en þrír fyrrum stjórnendur MS fagna sjötugsafmælum sínum í dag og í gær 🎉

Már Vilhjálmsson fyrrum rektor skólans varð sjötugur í gær, 18. júní, og þær Margrét Haraldsdóttir og Sigurrós Erlingsdóttir, báðar fyrrum kennslustjórar og kennarar við skólann, fagna sjötugsafmælum sínum í dag. Á einni myndinni má sjá Þorbjörn Guðjónsson, fyrrum kennara við skólann, sem einnig fagnaði sjötugsafmæli fyrr í sumar☀️

Við sendum þeim öllum hlýjar kveðjur í tilefni dagsins 🎈🎉

Photos 04/06/2026
Photos from Menntaskólinn við Sund's post 30/05/2026

🎓✨ Brautskráning 30. maí 2026 ✨🎓

159 nemendur útskrifuðust í dag við hátíðlega athöfn í Háskólabíó 💙

Þar á meðal var fyrsti hópurinn sem útskrifast af starfsbraut í sögu skólans 🎉

Dúx var Enok Hjörvarsson og semídúx Freyja Dís Hreinsdóttir 👏

Helga Sigríður Þórsdóttir rektor flutti ávarp og hvatti nemendur til að grípa tækifærin sem gefast. Lovísa Una Bryngeirsdóttir flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema 🎙️

Dagurinn einkenndist af tónlist – Ingibjörg Hafdís Gestsdóttir söng og Elsa María Indriðadóttir spilaði á píanó. Lilja Dögg Gunnarsdóttir íslenskukennari og kórstýra leiddi svo nemendur og gesti í fjöldasöng 🎶💫

Til hamingju með áfangann, kæru útskriftarnemar! 🎓💙🦢

➡️ Meira á www.msund.is


📸 Sigurjón Ragnar / srphoto

Photos from Menntaskólinn við Sund's post 22/05/2026

Hátíðleg og falleg stund á fardegi í gær þegar útskriftarnemar kvöddu skólann sinn 💙🦢

Á kveðju á sal fluttu nokkrir nemenda ræður og rifjuðu upp góðar minningar frá skólagöngunni 🧑‍🏫

Að lokum æfðu nemendur Gaudeamus Igitur fyrir útskriftarathöfnina og svo var haldið út í sólina og skálað í eplasíder 🎶🥂

Við þökkum útskriftarnemum fyrir samveruna í MS og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni ✨

16/05/2026

Langar þig í MS? 💙🦢

Innritun nemenda úr 10. bekk stendur yfir frá 24. apríl til 10. júní 🗓️

👉 Allar upplýsingar um námið og skólann á www.msund.is

16/05/2026

MS hefur hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli í samvinnu við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi 🎉

Skólinn er því orðinn hluti af alþjóðlegu neti skóla sem vinna að fræðslu um starfsemi Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, mannréttindi, frið og alþjóðasamvinnu 🫶

Viðurkenningin er mikilvægur gæðastimpill fyrir skólann og felur í sér aukin tækifæri til alþjóðlegs samstarfs, aðgang að fjölbreyttu námsefni og þátttöku í verkefnum og ráðstefnum erlendis 🌏

Frétt í fyrstu athugasemd.

Photos from Þýska sendiráðið - Deutsche Botschaft in Reykjavik's post 11/05/2026
28/04/2026

Innritun nemenda úr 10. bekk stendur yfir frá 24. apríl til 10. júní. Sótt er um í gegnum innritun.is

Nánari upplýsingar um námið í MS og félagslífið á msund.is (hlekkur í fyrstu athugasemd) 🦢💙

Photos from Menntaskólinn við Sund's post 27/04/2026

Fjögur MS-fyrirtæki komust áfram í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2026 og munu keppa í úrslitum í Arionbanka í dag og á morgun.

Þetta eru fyrirtækin .heilsudrykkur, og 👏👏

Þau, ásamt öllum flottu MS fyrirtækjunum, stóðu sig frábærlega á Vörumessu í Smáralind þarsíðustu helgi 🛍️

Til hamingju með árangurinn, kæru nemendur 🎉🎉

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Gnoðarvogur 43
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:00 - 14:00
Tuesday 08:00 - 14:00
Wednesday 08:00 - 14:00
Thursday 08:00 - 14:00
Friday 08:00 - 14:00