18/06/2026
Laufásborg
Laufásborg Hjallastefnan er félag á sviði uppeldis og menntunar sem starfrækir 17 skóla með tæplega 2000 nemendur og 430 starfsmenn.
Meðal lykilhugtaka eru virðing, agi, sjálfstraust, öryggi, hjálpsemi, víðsýni, hreinskiptni, gleði, umhyggja, kærleikur, kraftur og frumkvæði.
18/06/2026
17/06/2026
“Besti dagur lífs míns” mátti heyra af vörum barnanna en það var dagurinn sem raðaðist vel upp í sólskinsblíðu síðasta föstudag 🌻
Útisöngfundur - Hamborgaragrillgleði - Kennaravatnsslagur! ♥️
Þar er gott að vera sem gleðin býr ♥️
17/06/2026
Safnaferðir eru eitt af okkar uppáhalds 💙 Við vorum einstaklega heppin að Helgi Þorgils var með okkur þegar við heimsóttum sýninguna hans 💙 Takk innilega og takk innilega elsku Unnur Mjöll S. Leifsdóttir fyrir okkur þetta var mikil gæðastund ♥️ Hafnarborg
Það er alltaf gaman hjá skemmtilegum 💫
17/06/2026
Fallegt af vörum barns ♥️
13/06/2026
Laugardagur til lukku 💚
Þökk sé elsku Herði og Björgvini vinum okkar að það er verið að þökuleggja garðinn, setja nýjan sand og klippa tré sem þörf er á öryggisins vegna 💚 Hamingjuhöllin er umvafin 🌻
Takk kæru vinir 🙏🏻
Björgvin Ívarsson Schram
Julia Zakharchuk
Það er alltaf gaman hjá skemmtilegum! 💕🎶❤️
13/06/2026
Laufásborg á Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar í Hörpu og Listahátíð í Reykjavík 🪘💛🎶
Börnin á Laufásborg tóku þátt í Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar í Hörpu í dag samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. 💛 Þar fengu þau tækifæri til að miðla tónlistargleði sinni og kynnast fjölbreyttum tónlistarhefðum heimsins. Á Laufásborg læra börn að leika á djembe-trommur sem voru sérsmíðaðar í Gíneu í Vestur-Afríku fyrir okkur og eru vegleg gjöf frá foreldrafélagi Laufásborgar. Við erum afar þakklát foreldrafélaginu okkar fyrir stuðninginn! 💛 Trommurnar eru mikilvægur hluti af metnaðarfullu tónlistarstarfi skólans þar sem börnin fá að æfa framkomu og upplifa takt, samspil, lífsgleði og sköpun í gegnum tónlist. 💛 Tónlistarnám skipar ríkan sess í starfi Laufásborgar og styður við málþroska, hlustun, einbeitingu og lestrarnám síðar á skólagöngunni. Með markvissri tónlistarkennslu fá börnin því dýrmæt verkfæri sem nýtast þeim bæði í leik og námi. 💛 Við erum afar stolt af þátttöku barnanna á hátíðinni og einnig viljum við færa foreldrum barnanna innilegar þakkir fyrir traustið og samstarfið. Þau spila lykilhlutverk því án þeirra og barnanna þeirra væru viðburðir sem þessir ekki mögulegir en þau eru alltaf boðin og búin að vera með okkur. HJARTANS ÞAKKIR kæru vinkonur og vinir! 💛
Maxímús Músíkús lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og dansaði allan tímann á meðan börnin spiluðu! 💛💛💛
Fallega lífið á Laufásborg ❤️ Lítill ungi situr í hreiðrinu sínu og horfir á börnin úti að leika saman í náttúrulega útisvæðinu okkar ❤️
11/06/2026
🇫🇷 Bonjour chères amies et chers amis! 🇫🇷
Elstu börnin hafa sótt frönskutíma einu sinni í viku allan vetur hjá elsku Alexíu og Adrien. ❤️ Við höfum unnið með bókina um Tatou le Chat eða köttinn Tatou. Tatou á fimm töskur sem tákna hver sitt skynfæri. Í hverja tösku setur hann hluti sem tengjast viðkomandi skilningarviti.
👀👂👃👅🖐️
Með sögum, leikjum, söngvum og fjölbreyttum verkefnum hafa börnin lært ný frönsk orð og hugtök á skemmtilegan og lifandi hátt. ❤️ Markmið frönskukennslunnar er að efla málvitund, vekja forvitni og skapa jákvæða reynslu af tungumálanámi frá unga aldri þannig að börnin öðlist sjálfstraust og áhuga á nýju tungumáli og menningu. Börnin fengu meðal annars að kynnast franskri matarmenningu og það sem stóð upp úr voru ekta frönsk pylsa, Camembert ostur, baguette brauð, fersk kirsuber og madeleine kökur. ❤️
❤️ Merci beaucoup!! ❤️
11/06/2026
Viðtal um fallegu Kærleikskortin okkar ♥️ Gaman að deila aftur, því þau eru svo stór hluti af okkur ♥️ Takk 🙏🏻
Lífið er boomerang
„Þú ert að lyfta barninu upp með því að veita þessu athygli“ - RÚV.is Leikskólinn Laufásborg æfir jákvæða athygli með börnunum í skólanum með svokölluðum hróskortum og þakkarkortum. Jensína Edda Hermannsdóttir kynntist kortunum sem starfsnemi 1997 og segir að það styrki börn að nota jákvæðar staðæfingar um sig og aðra.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Telephone
Website
Address
Laufásvegur 53-55
Reykjavík
101