Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Share

Skemmtilegt og hagnýtt nám sem nýtist á flestum sviðum atvinnulífsins.

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands (University of Iceland School of Business) er elsti og stærsti viðskiptaháskóli á Íslandi. Viðskiptafræðideildin hefur gegnt forystuhlutverki í menntun stjórnenda og sérfræðinga á sviði viðskiptafræði í rúma átta áratugi. Á sama tíma hefur deildin lagt metnað sinn í að auka og miðla framúrskarandi og alþjóðlega viðurkenndri þekkingu á þessu sviði með því að vera

23/06/2026

Hvernig breytist hlutverk stjórnenda á næstu árum?

Kennarar í viðskiptafræði við Háskóla Íslands fjalla um mikilvægi þess að stjórnendur geti brugðist við breytingum, greint ólíka valkosti, hlustað eftir ólíkum sjónarmiðum og nýtt ný tæki og tól þar á meðal gervigreind.

Þau minna jafnframt á að gagnrýnin hugsun verður áfram lykilfærni í stjórnun framtíðarinnar.

22/06/2026

Hvernig er að stunda nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og hvað tekur við að námi loknu?

Fyrrverandi nemendur segja frá sinni reynslu, náminu og hvernig viðskiptafræðin hefur nýst þeim á ólíkum vettvangi.

Hilda Amoako-Arhin útskrifaðist með ágætiseinkunn í International Business and Project Management 18/06/2026

Hilda Amoako-Arhin útskrifaðist með ágætiseinkunn í International Business and Project Management frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá leiðinni frá Gana til Íslands, fjölbreyttu námi og því hvernig skipulag, agi og stuðningur hjálpuðu henni að ná markmiðum sínum.

Innilega til hamingju, Hilda

Hilda Amoako-Arhin útskrifaðist með ágætiseinkunn í International Business and Project Management Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Júlía Birgisdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun 18/06/2026

Júlía Birgisdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá fjölbreyttum tækifærum í náminu, skiptinámi í Danmörku, starfsþjálfun hjá Eimskip og mikilvægi þess að nýta styrkleika sína.

Innilega til hamingju, Júlía!

Júlía Birgisdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Zill e Huma útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun 18/06/2026

Zill e Huma útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir hún frá leiðinni frá Pakistan til Íslands, áhuganum á stjórnun og verkefnavinnu og því hvernig þrautseigja og góð tímastjórnun hjálpuðu henni í gegnum námið.

Innilega til hamingju, Zill e Huma!

Zill e Huma útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

17/06/2026

Á 17. júní fögnum við sjálfstæði Íslands.

En sjálfstæði snýst ekki aðeins um stjórnmál og sögu. Það snýst líka um getu samfélags til að byggja upp menntun, atvinnulíf, nýsköpun, traust og sjálfbærar ákvarðanir.

Viðskiptafræði fjallar einmitt um slíkar ákvarðanir, hvernig við sköpum verðmæti, nýtum auðlindir og tökum ábyrgð í samfélagi sem er sífellt að breytast.

Gleðilegan 17. júní frá Viðskiptadeild Háskóla Íslands.

05/06/2026

Sæktu um núna!

04/06/2026

Umsóknarfrestur til að sækja um nám við Háskóla Íslands rennur út á morgun!
Ekki missa af tækifærinu til að taka næsta skref í námi.
Sæktu um á hi.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní.

Photos from Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands's post 29/05/2026

Við erum enn með tvær spennandi starfsþjálfunarstöður lausar fyrir haustið og höfum því framlengt umsóknarfrestinn.

Starfsþjálfun er frábært tækifæri til að öðlast hagnýta reynslu, kynnast starfsvettvangi þínu betur og tengja námið við raunveruleg verkefni.

Umsóknarfrestur er til 5. júní.

22/05/2026

Starfsþjálfun sem varð upphafið að nýjum kafla

Jóhann Haukur Sveinbjörnsson, nemandi í viðskiptafræði, fór í starfsþjálfun hjá KPMG þar sem hann fékk tækifæri til að vinna að raunverulegum verkefnum með raunverulegum gögnum fyrirtækja.

„Það sem stóð mest upp úr var að geta nýtt þá þekkingu sem ég hef öðlast í náminu í raunverulegum aðstæðum.“

Jóhann segir að vel hafi verið tekið á móti honum hjá KPMG frá fyrsta degi og að starfsumhverfið hafi verið bæði faglegt og styðjandi. Starfsþjálfunin gaf honum dýrmæta innsýn í störf tengd endurskoðun, fjármálum, rekstri og ráðgjöf og hafði bein áhrif á næstu skref.

Að starfsþjálfun lokinni fékk Jóhann starfstilboð hjá KPMG, sem hann hefur nú þegar samþykkt.

„Þessi valáfangi hafði meiri áhrif á líf mitt en nokkur annar valáfangi sem ég hef tekið.“

Starfsþjálfun getur því verið miklu meira en hluti af námi, hún getur opnað dyr að framtíðarstarfi.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sæmundargötu 2
Reykjavík
102