15/06/2026
Starfsfólk Lyfjafræðideildar minnist Þórdísar Kristmundsdóttur, prófessor emerita í Lyfjafræði við Háskóla Íslands, sem lést þann 11. júní síðastliðinn.
Þórdís var brautryðjandi á sviði Lyfjafræði á Íslandi og önnur konan sem skipuð var prófessor við Háskóla Íslands. Gegndi hún lykilhlutverki í uppbyggingu Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands. Framlag Þórdísar til rannsókna, kennslu og þróunar á lyfjafræði sem fræðigrein hér á landi var ómetanlegt og gegndi hún fjölmörgum trúnaðar- og forystustörfum á þeim vettvangi.
Við þökkum Þórdísi fyrir hennar merka framlag til vísinda, menntunar og samfélagsins alls og sendum við aðstandendum hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir
Þórdís Kristmundsdóttir, fyrrverandi prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands, lést sl. fimmtudag, 11. júní. Þórdís var fædd 13. nóvember 1948.
11/06/2026
Glæsilegur árangur starfsfólks Lyfjafræðideildar í úthlutun Tækniþróunarsjóðs Rannís:
Lyfjafræðideild Háskóla Íslands óskar starfsfólki deildarinnar innilega til hamingju með þann árangur að hljóta styrki úr Tækniþróunarsjóði Rannís. Styrkirnir styðja við öflugt rannsóknar- og nýsköpunarstarf innan deildarinnar og munu stuðla að frekari framþróun á sviði lyfjaþróunar, líftækni og heilbrigðisvísinda.
Hagnýt rannsóknarverkefni
• PUREV: Þróun á sértæku og skalanlegu skiljuferli fyrir framleiðslu á erfðabreyttum utanfrumubólum – verkefnið er leitt af Dr. Jens Guðmundi Hjörleifssyni, Dr. Berglindi Evu Benediktsdóttur og Dr. Páli Þór Ingvarssyni. Markmið verkefnisins er að þróa nýja tækni sem getur einfaldað og bætt framleiðslu utanfrumubóla til framtíðarnota í greiningu og meðferð sjúkdóma.
• Staðbundin meðferð við handaslitgigt – verkefnið er leitt af Dr. Bergþóru Sigríði Snorradóttur og miðar að þróun nýrra meðferðarmöguleika fyrir einstaklinga sem glíma við handaslitgigt.
Markaðsþróunarverkefni
• BIOSIL-M – verkefnið er leitt af Dr. Vivien Nagy og Dr. Má Mássyni og hlaut styrk til markaðsþróunar.
Verkefnið “Nýtt lyf við meðferð á Psoriasis - Rannsókn á öryggi og verkun NS01 í mönnum” fékk styrk til að hefja undirbúning á fasa I/IIa rannsókn en Lyfjafræðideild og Hákon Hrafn Sigurðsson hafa unnið með Nepsone í þessu verkefni undanfarin ár.
Við óskum öllum styrkþegum innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með framgangi verkefnanna og þeim áhrifum sem þau munu hafa á rannsóknir, nýsköpun og samfélagið.
10/06/2026
Liðið Lyfjaform innan Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands, skipað þeim Berglindi Evu Benediktsdóttur, Elvari Erni Viktorssyni og Hákoni Hrafni Sigurðssyni, bar sigur úr býtum í keppninni Hjólað í vinnuna innan HÍ í flokki liða með hlutfallslega flesta hjólaða kílómetra.
Verðlaunin voru afhent á vorfagnaði Háskóla Íslands í síðustu viku, þar sem Elvar Örn tók við viðurkenningunni fyrir hönd liðsins. Jafnframt sigraði Stjórnsýsla HVS, lið skipað s*x starfsmönnum, í keppninni um hlutfallslega flesta þátttökudaga.
Árangurinn endurspeglar þann kraft og metnað sem starfsfólk HÍ sýnir í að velja virka samgöngumáta í daglegu lífi. Lyfjafræðideild óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og vonast til að hann verði öðrum hvatning til að hjóla, ganga eða nýta aðra virka ferðamáta til og frá vinnu.
Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa sigurliðanna tveggja, Guðrúnu Björk Friðriksdóttur og Elvar Örn Viktorsson, ásamt rektor Háskóla Íslands.
05/06/2026
Á árlegum deildardegi starfsfólks Lyfjafræðideildar sem fram fór á dögunum var Nýr Landspítali skoðaður.
Starfsfólk deildarinnar er þakklátt fyrir góðar móttökur og fræðandi kynningu.
Kennarar Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands í heimsókn
Nýr Landspítali er stærsta byggingarverkefni í heilbrigðisþjónustu Íslands. Með nútímalegum meðferðarkjarna, sjúkrahóteli og rannsóknahúsum verður reist þjóðarsjúkrahús sem mætir þörfum framtíðarinnar.
29/05/2026
Í hádeginu í dag fer lokafundur vormisseris í fundaröðinni Heilsan okkar fram, þar sem umfjöllunarefnið er ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir.
Í tengslum við þann viðburð mættu Freyja Jónsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild HÍ og Adam Bauer, réttarefnafræðingur og doktorsnemi, í Bítið á Bylgjunni í gær og fóru yfir magn falsaðra lyfja sem eru í umferð, áhrif lyfja á umhverfið og fleira. Mælum með hlustun.
Heilsan okkar fer fram kl 11:30 í dag í Veröld, húsi Vigdísar. Hlekk á viðburðinn má finna í athugasemd.
https://bylgjan.visir.is/g/20262889817d/folsud-lyf-i-um-ferd-og-ketamin-finnst-i-skolpinu?fbclid=IwY2xjawSFeA1leHRuA2FlbQIxMQBicmlkETBvcEhNNGxkTHJ0U3U1RW5Ic3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHgloqi0L4x94T61Kbi5k2Fk6C-xS9H15vCP_kcXIRrdZ0FzYWq7PGjMPZh2C_aem_Tl-E5LpKLSQFxkEJgp5pdA
BYLGJAN - Fölsuð lyf í umferð og ketamín finnst í skólpinu
Mikið magn falsaðra lyfja er í umferð hér á landi og í skólpinu finnast alls kyns efni, allt frá ópíóðum til ketamíns. Þetta kom fram hjá Freyju Jónsdóttur, dósent við lyfjafræðideild Háskóla Íslands, og Adam Bauer, réttarefnafræðingi á Rannsóknastofu í lyfja- og eitur...
08/05/2026
Starfsmenn Lyfjafræðideildar, þau Dr. Berglind og Dr. Páll Þór, sem kenna verðandi lyfjafræðingum um góða framleiðsluhætti lyfja, líftæknilyf og formúleringar, vinna nú hörðum höndum ásamt Dr. Jens Guðmundi hjá Verk-og náttúrufræðisviði, að því að koma á markað lausnum sem tengjast greiningum á utanfrumubólum (e.extracellular vesicles, EVs) tengt krabbameinum og að sama skapi að stofnun nýsköpunarfyrirtækisins Affineva. Verður spennandi að sjá hverju fram vindur hjá þessu efnilega vísindafólki. Nánar í frétt HÍ
https://hi.is/frettir/stydja_vid_throun_betri_greiningaradferda_og_medferda_vid_krabbameinum?fbclid=IwY2xjawRqhcBleHRuA2FlbQIxMABicmlkETFZU0dDd01KNXhXOU9LQW03c3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHo0b2QrnH3nJLfO08ZNphT537aNOIHpGxz-RsBXZManRMbhyZIQ3LiMnEtH3_aem_yo8vQpQlpAHqSUKtydLWxA
Styðja við þróun betri greiningaraðferða og meðferða við krabbameinum
Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun
07/05/2026
Meistaravarnir við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands fara fram miðvikudaginn 13. maí í Eddu, stofu 103.
Dagskrá má sjá á meðfylgjandi hlekk - verið öll hjartanlega velkomin.
hi.is
06/05/2026
"Markmiðið er einfalt en mikilvægt: að meðferð þín byggist á lyfjum sem gagnast þér, en ekki lyfjum sem eru orðin óþörf."
Mælum með lestri þessarar góðu greinar eftir Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur, en hún er aðjúnkt við Lyfjafræðideild og formaður Lyfjafræðingafélags Íslands.
www.visir.is
11/03/2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir háskólaárið 2026-2027 - nám í lyfjafræði opnar margar dyr.
Nám í lyfjafræði opnar margar dyr
Nám í lyfjafræði við Háskóla Íslands er bæði fjölbreytt og spennandi og veitir mikla möguleika í atvinnulífinu.
06/03/2026
Vekjum athygli á auglýsingu um sérnámsstöður lyfjafræðinga í klínískri lyfjafræði. Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2026, sjá nánar á meðfylgjandi hlekk:
Sérnámsstöður lyfjafræðinga í klínískri lyfjafræði | Ísland.is
Landspítali auglýsir laus til umsóknar störf lyfjafræðinga sem samhliða fullu starfi leggja stund á sérnám í klínískri lyfjafræði við Háskóla Íslands. Í starfinu felst vinna á klínískum deildum á spítalans og innan Lyfjaþjónustu. Sérnáminu lýkur með meistaragráðu fr....