Sandgerðisskóli

Sandgerðisskóli

Share

VÖXTUR - VIRÐING - VILJI - VINÁTTA

Sumarleyfi 16/06/2026

Skrifstofa skólans er lokuð frá 22. júní til og með 5. ágúst. Við bendum á tölvupóstfang skólans [email protected] og heimasíðu www.sandgerdisskoli.is ef tilkynna þarf breytingar eða sækja um skólavist.

Formlegt skólastarf nemenda fyrir skólaárið 2026-2027 hefst mánudaginn 24. ágúst. Nánari tímasetning auglýst síðar.

Sumarfrístund fyrir börn fædd árið 2020, sem hefja nám í 1. bekk haustið 2026, opnar mánudaginn 10. ágúst. Skráning fer fram í gegnum vala.is

Starfsfólk Sandgerðisskóla þakkar nemendum, foreldrum/forráðamönnum fyrir samstarfið á liðnu skólaári.

Njótið sumarsins 🌞

Sumarleyfi Endurmenntunar-, undirbúnings- og sumarfrísdagar starfsfólks eru frá 12. júní – 14 ágúst 2026. Skrifstofa skólans er lokuð frá 22. júní til og með 5. ágúst. Við bendum á tölvupóstfang skólans [email protected] og heimasíðu www.sandgerdisskoli.is ef tilkynna þarf...

Photos from Sandgerðisskóli's post 15/06/2026

Kæru foreldrar/forráðamenn.
Við viljum hvetja ykkur að koma og kanna hvort einhverjir munanna tilheyri börnum ykkar.

Mikið hefur safnast upp af óskilamunum yfir skólaárið. Allir óskilamunir hafa nú verið settir saman á einn stað á neðri hæð skólans. Hægt verður að vitja þeirra til og með föstudeginum 19. júní, milli kl. 08:15-15:30.

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar 10/06/2026

Skólaslit Sandgerðisskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans 5. júní s.l..🌹❤️

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar Skólaslit Sandgerðisskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans 5. júní s.l.. Skólaslitin voru þrískipt, 1. - 4. bekkur, 5. – 8. bekkur og því næst 9. bekkur og útskrift 10. bekkjar.

10/06/2026

Svavar Snigill 🐌 hefur nú lokið sínu þriðja skólaári í Sandgerðisskóla. Hann flutti inn í náttúrufræðistofuna haustið 2023. Þar á hann sitt eigið notalega herbergi.

Uppáhaldsréttir hans eru kál og gúrka, og hann er þekktur fyrir að naga sig í gegnum salat eins og enginn sé morgundagurinn. 🥒

Kasia okkar sér um að Svavar fari reglulega í sturtu, þó það geti verið áskorun þar sem hann sefur fast og þarf stundum hvatningu til að vakna. 😅 Eftir góða sturtu,teygir hann úr sér, og tekur nokkrar upphífingar. 💪 Það er ótrúlegt að sjá styrkinn í honum, þrátt fyrir að bera sitt brothætta litla hús á bakinu. 🐌

En snigill er bara snigill
þó snjall sé hann bæði og fús,
hann verður að burðast á bakinu með
sitt brothætta, litla hús.

09/06/2026
Sumarlestur 09/06/2026

Bókasafn Suðurnesjabæjar býður börnum á grunnskólaaldri að taka þátt í sumarlestri á bókasafninu frá 20. maí – 20. ágúst. 🚀

Í ár verður sumarlesturinn með tvennskonar þema: Geimlestrarleiðangurinn og Ferðalag með Gúnda geithaf. Dregnir verða út vinningar á 2 vikna fresti úr happamiðum sem þátttakendur hafa skilað á safnið.

Lokahátíð í sumarlestrinum verður haldin í upphafi Vitahátíðar þann 24. ágúst á bókasafninu.

Sumarlestur Bókasafn Suðurnesjabæjar býður börnum á grunnskólaaldri að taka þátt í sumarlestri á bókasafninu frá 20. maí – 20. ágúst.Það má byrja hvenær sem er á þessu tímabili.

Skólarokk 2026 í Sandgerðisskóla 04/06/2026

Mikil gleði og keppnisandi ríkti í Sandgerðisskóla þegar hið árlega Skólarokk fór fram🏆Skólarokk er orðinn fastur og kærkominn hluti af skólastarfinu, þar sem nemendur fá tækifæri til að sýna styrkleika sína á ólíkum sviðum.

Dagarnir í ár voru sérstaklega skemmtilegir og það sem vakti mesta athygli var hversu vel nemendur stóðu saman 🥰

Jákvæð samskipti, virðing og góður liðsandi einkenndu dagana og sýndu vel þau gildi sem Sandgerðisskóli leggur áherslu á í daglegu starfi. 🫶 Myndir fylgja frétt.

Skólarokk 2026 í Sandgerðisskóla Mikil gleði og keppnisandi ríkti í Sandgerðisskóla þegar hið árlega Skólarokk var haldið þriðjudag og miðvikudag. Skólarokk er einn af hápunktum vorsins þar sem nemendur fá tækifæri til að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum sem reyna á þekkingu, sköpun, samvinnu, útsjóna...

Podcast Sandgerðisskóla 02/06/2026

Á þessu skólaári var Podcast val í boði fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. 🎤Nemendur tóku upp nokkra þætti þar sem meðal annars var tekið viðtal við Tomma Knúts um lífið innan girðingar á gamla varnarliðssvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Einnig eru þættir um kvikmyndir og tölvuleiki, og svo var fjallað um boltaíþróttir í Suðurnesjabæ. Hægt að hlusta á þættina á streymisveitu Spotify https://open.spotify.com/show/3g0csLC2DqsjbGy7ilJ4Hf?si=a74a702e10804c59

Podcast Sandgerðisskóla Nemendur í þessu vali tóku upp nokkra þætti þar sem meðal annars var tekið viðtal við Tomma Knúts um lífið innan girðingar á gamla varnarliðssvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Einnig eru þættir um kvikmyndir og tölvuleiki og svo var fjallað um boltaíþróttir í Suðurnesjabæ ....

Reiðhjólahjálmar að gjöf 02/06/2026

Nemendur í 1. bekk fengu afhenta reiðhjólahjálma að gjöf frá Kiwanisklúbbi Hofi í Garði. Með gjöfinni minnir Kiwanishreyfingin á að reiðhjólahjálmur er mikilvægur öryggisbúnaður 🚴‍♂️ Einnig komu fulltrúar frá Samfélagslögreglu Suðurnesja og fóru yfir notkun hjálmsins. Nemendur 1. bekkjar eru virkilega ánægðir með gjöfina og þakka kærlega fyrir sig 🫶

Reiðhjólahjálmar að gjöf Nemendur í 1. bekk fengu reiðhjólahjálma að gjöf frá Kiwanisklúbbi Hofi í Garði. Með gjöfinni minnir Kiwanishreyfingin á að reiðhjólahjálmur er mikilvægur öryggisbúnaður og til að gjöfin nýtist sem best og skili tilætluðum árangri er mikilvægt að nemendur noti hjálminn ...

Árgjald foreldrafélags Sandgerðisskóla 29/05/2026

Kæru foreldrar/forráðamenn.
Foreldrafélag Sandgerðisskóla hefur sent út gíróseðla með árgjaldi fyrir félagið að upphæð kr. 3.000kr á hverja fjölskyldu óháð fjölda barna. Það er einlæg ósk okkar í stjórn að þið foreldrar/forráðamenn takið vel í þetta og greiði gjaldið þar sem þessi peningur er notaður í ýmis málefni sem tengjast börnunum ykkar og skólastarfi. 🫶

Kær kveðja,
stjórn foreldrafélags Sandgerðisskóla.

Árgjald foreldrafélags Sandgerðisskóla Foreldrafélag Sandgerðisskóla hefur sent út gíróseðla með árgjaldi fyrir félagið að upphæð kr. 3.000kr á hverja fjölskyldu óháð fjölda barna. Það er einlæg ósk okkar í stjórn að þið foreldrar/forráðamenn takið vel í þetta og greiði gjaldið þar sem þessi peningur...

Want your school to be the top-listed School/college in Sandgerði?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Skólastræti
Sandgerði
245

Opening Hours

Monday 07:45 - 15:30
Tuesday 07:45 - 15:30
Wednesday 07:45 - 15:30
Thursday 07:45 - 15:30
Friday 07:45 - 14:00